Stefnan
8 lykilmál
Þetta er það sem við ætlum að gera.
Atvinnulífið
Sterkt atvinnulíf er forsenda velferðar.
-
Við viljum vinna með fyrirtækjum til að ýta undir vöxt og ný tækifæri á svæðinu.
-
Við ætlum að einfalda regluverk og lækka fasteignagjöld til að styðja lítil og meðalstór fyrirtæki.
-
Fjölgum atvinnulóðum í bænum.
-
Lækkum fasteignagjöld til að ýta undir vöxt og nýsköpun.
-
Akureyri verður að vera sterkt mótvægi við höfuðborgarsvæðið. Þess vegna styðjum við atvinnulífið.
Uppbygging
Við höldum uppbyggingu áfram og bætum í.
-
Við fjölgum íbúðum í öllum verðflokkum með sérstaka áherslu á fyrstu kaupendur.
-
Komum af stað íbúðauppbyggingu á Oddeyri.
-
Fjölgum bílastæðum í miðbænum.
-
Búsetukjarnar fyrir eldra fólk sem vill minnka við sig.
-
Við hröðum innviðauppbyggingu þannig að lóðir séu byggingarhæfar á tilsettum tíma.
-
Dreifum gjöldum yfir byggingartímann til að auðvelda fólki að byggja sér hús.
Menntun
Akureyri á að vera besti staðurinn til að ala upp börn.
-
Afnemum fengitímann á Akureyri! Fólk á ekki að þurfa að horfa á dagatalið til að búa til börn. Tökum inn á leikskóla tvisvar á ári.
-
Leita þarf leiða til að auka sveigjanleika í þjónustu leikskóla í samvinnu við starfsfólk varðandi vistunartíma og sumarleyfi.
-
Við bætum sértækan stuðning við nemendur og kennara innan skólanna.
-
Við styrkjum tónlistarkennslu og auka samstarf tónlistarskóla við hefðbundna skóla.
-
Við tölum fyrir auknu námsframboði og þrýstum á að Háskóli allra landsmanna bjóði upp á fjarnám.
Samgöngur
Betri samgöngur skila sér margfalt til baka í auknum hagvexti.
-
Akureyrarflugvöllur er ekki bara varaflugvöllur. Hann á að vera önnur gátt inn í landið.
-
Með aukinni tíðni og samfellu í flugi eflum við ferðaþjónustu, atvinnulíf og bætum lífsgæði.
-
Við bætum göngu- og hjólaleiðir til að auka lýðheilsu og draga úr kolefnisspori.
-
Við tölum fyrir styttingu leiðarinnar milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Eldra fólk
Heilbrigði og félagslíf aldraðra í fyrirrúmi.
-
Byggjum samkomusal sem uppfyllir þarfir eldri borgara.
-
Lífsgæðakjarni með glatvarma frá gagnaverunum.
-
Berjumst gegn félagslegri einangrun, t.d. með Karlar í skúrum verkefninu.
Menning, íþróttir og mannlíf
Markmiðið er skýrt: Akureyri sem menningarhöfuðborg Norðurlands.
-
Klárum frágang á KA-svæðinu og hefjum uppbyggingu íþróttahúss á Þórs-svæðinu.
-
Styðja við uppbyggingu á svæði Bílaklúbbs Akureyrar.
-
Hefjum uppbyggingu á nýjum 9 holu golfvelli á Jaðri og undirbúum uppbyggingu nýs golfvallar á Skjaldarvík.
-
Eflum Akureyri sem Vetraríþróttamiðstöð Íslands og bætum aðstöðuna í Hlíðarfjalli með nýrri stólalyftu í stað Fjarkans. Og stækkum bílastæðið!
-
Styðja við reglulega tónleika yfir sumartímann til að efla menningarlíf og skapa vettvang fyrir tónlistarfólk.
-
Efla starfsemi í Rósenborg og blása lífi í svæðið.
-
Byrjum hönnunarvinnu á 50 metra yfirbyggðri keppnissundlaug.
-
Bætum heitum potti við aðstöðuna hjá Nökkva.
-
Byggjum nýtt geymsluhúsnæði fyrir Minjasafnið á Akureyri.
Lækkun skatta
Fasteignagjöld hafa hækkað óhóflega. Við breytum þessu.
-
Svigrúmið sem er til staðar verður nýtt til að lækka fasteignagjöld á íbúa og fyrirtæki.
-
Við hagræðum í stjórnsýslunni til að fjármagna metnaðarfulla þjónustu.
-
Við höldum aftur af verðhækkunum.
-
Við förum yfir fasteignir bæjarins og metum hlutverk þeirra til að hámarka nýtingu.
Ríkið
Við vinnum markvisst með ríkisstjórninni.
-
Stækkun og efling Sjúkrahússins á Akureyri er lykilatriði fyrir byggð á Norðausturlandi.
-
Ný þyrlusveit Landhelgisgæslunnar verður staðsett á Akureyri.
-
VMA verður stækkaður og uppbyggingu hjúkrunarheimila hraðað.
-
Þrýstum á um samgöngubætur að Skógarböðum.