Akureyrarlistinn — Allt að gerast
Akureyrarlistinn

Af hverju að kjósa okkur í
Akureyrarlistanum?

Akureyrarlistinn

Allt að gerast

Vegna þess að við elskum Akureyri

Akureyrarlistinn er framsækinn og metnaðarfullur hópur fólks sem vill ganga til verka og skila sjáanlegum árangri fyrir Akureyringa.

Skoða stefnuna
8 Lykilmál
Lægri skattar
Fleiri íbúðir

Liðið

Fólkið á bak við þetta

Akureyringar sem ganga til verka.

Þórhallur Jónsson

Þórhallur Jónsson

1. sæti

Framkvæmdastjóri & varabæjarfulltrúi.

Nánar
Karen Sigurbjörnsdóttir

Karen Sigurbjörnsdóttir

2. sæti

Mannauðsfulltrúi & flíspeysumamma.

Nánar
Helgi Steinar Halldórsson

Helgi Steinar Halldórsson

3. sæti

Fasteignasali & ljósamaður.

Nánar
Kristrún María Björnsdóttir

Kristrún María Björnsdóttir

4. sæti

Doktorsnemi.

Nánar
Darri Rafn Hólmarsson

Darri Rafn Hólmarsson

5. sæti

Tölvunarfræðingur & plötusnúður.

Nánar
Dana Rán Jónsdóttir

Dana Rán Jónsdóttir

6. sæti

Sérfræðingur & líftæknifræðingur.

Nánar
Vilmundur Aðalsteinn Árnason

Vilmundur Aðalsteinn Árnason

7. sæti

Framkvæmdastjóri & fyrrverandi sjómaður.

Nánar
Guðjón Andri Gylfason

Guðjón Andri Gylfason

8. sæti

Framhaldskólakennari & lífefnafræðingur.

Nánar
Elfa Ágústdóttir

Elfa Ágústdóttir

9. sæti

Dýralæknir.

Pavel Víking Landa

Pavel Víking Landa

10. sæti

Byggingaverktaki & smiður.

Nánar
Rannveig Hansen Jónsdóttir

Rannveig Hansen Jónsdóttir

11. sæti

Fjármálastjóri.

Nánar
Hilmar Friðjónsson

Hilmar Friðjónsson

12. sæti

Framhaldsskólakennari.

Fríða Kristín Hreiðarsdóttir

Fríða Kristín Hreiðarsdóttir

13. sæti

Grunnskólakennari.

Nánar
Friðbjörn Benediktsson

Friðbjörn Benediktsson

14. sæti

Rekstrarstjóri.

Harpa Þórey Sigurðardóttir

Harpa Þórey Sigurðardóttir

15. sæti

Þjónustufulltrúi.

Elvar Freyr Pálsson

Elvar Freyr Pálsson

16. sæti

Viðskiptafræðingur.

Axel Darri Þórhallsson

Axel Darri Þórhallsson

17. sæti

Efnisskapari.

Rúnar Þór Björnsson

Rúnar Þór Björnsson

18. sæti

Ljósmyndari.

Ingibjörg Margrét Þórhallsdóttir

Ingibjörg Margrét Þórhallsdóttir

19. sæti

Eldri borgari.

Þórhallur Jónsson

Þórhallur Jónsson

1. sæti · Framkvæmdastjóri & varabæjarfulltrúi.

Ég er fæddur í Hafnarfirði 24. maí 1966, en flutti eins árs til Akureyrar. Tíu ára gamall flutti ég með foreldrum mínum til Barein í Miðausturlöndum og gekk þar í amerískan skóla í tvö ár. Þaðan flutti fjölskyldan til Balí í Indónesíu, en 13 ára var ég sendur heim og hóf nám í Gagnfræðaskólanum á Akureyri.

Á unglingsárum vann ég við félagsmiðstöðvar Akureyrarbæjar, mest í Dynheimum sem plötusnúður. Ég byrjaði að spila 15 ára í H100 og 16 ára var ég farinn að spila í Sjallanum. Ég lærði rafeindavirkjun við VMA og Iðnskólann í Reykjavík.

Ég er mikill fjölskyldumaður, kvæntur Ingu Vestmann, og við eigum þrjú börn: Axel Darra, Andra Má og Rebekku Rut. Einnig eigum við fimm barnabörn og eitt á leiðinni. Ég og eiginkona mín, Inga, eigum og rekum Pedrómyndir ehf., og í verslun okkar við Skipagötu starfaði öll fjölskyldan um árabil. Ég hef starfað við verslun og þjónustu í rúm 40 ár.

Ég var einn af stofnendum Áhugaljósmyndaklúbbs Akureyrar árið 1991 og gegndi stöðu gjaldkera klúbbsins í 26 ár. Auk þess var ég formaður Miðbæjarsamtakanna um tíma og sat lengi í stjórn Kaupmannafélags Akureyrar, auk þess að koma að ýmsu öðru félagsstarfi.

Ég var formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri 2024–2025, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar 2023–2024 og áður 2016–2018, og sat í stjórn félagsins 2014–2025. Ég var bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri 2018–2022 og hef verið varabæjarfulltrúi frá 2022. Ég hef setið í skipulagsráði Akureyrarbæjar frá 2018, var formaður 2020–2022 og varaformaður frá 2022. Einnig hef ég setið í stjórn Norðurorku frá 2022 (áður varamaður 2019–2022) og sat í hafnarstjórn 2019–2022. Ég var varamaður í atvinnumálanefnd 2014–2015 og í stjórn Akureyrarstofu 2016–2018, þannig að ég hef töluverða reynslu í bæjarmálum.

Ástæðan fyrir því að ég gaf kost á mér í pólitík árið 2018 var að koma hreyfingu á hlutina. Við vorum búin að búa of lengi við stöðnun hér í bæ, en það tókst – mikil uppbygging hefur átt sér stað á undanförnum árum. Nú vil ég láta enn meira til mín taka og halda áfram að keyra hlutina áfram fyrir Akureyri og okkur öll. Það er frábær hópur fólks sem skipar Akureyrarlistann og vill láta gott af sér leiða fyrir Akureyri. Vertu með okkur í liði í vor og settu X við A.

Galin staðreynd: Það sem fæstir vita er að ég er ekki heavy rokkari, þó ég sé með sítt hár og skegg, heldur alger diskódrottning. Ég er alin upp í Dynheimum á gullaldarárum 80s diskótónlistar og veit ekkert betra en að hlusta á tónlist frá þeim tíma. Uppáhaldstónlistarmaður minn er Bruce Springsteen.

Karen Sigurbjörnsdóttir

Karen Sigurbjörnsdóttir

2. sæti · Mannauðsfulltrúi & flíspeysumamma.

Ég er fædd á Akureyri 14. júní 1993 og hef þar alla tíð búið, fyrir utan nokkur háskólaár í Reykjavík og einn vetur í Noregi, þar sem ég stundaði nám í skíðamenntaskóla. Ég er dóttir Örnu Ívarsdóttur og Sigurbjörns Sveinssonar heitins og er elst þriggja systkina. Ég er gift Stefáni Waagfjörð, flugstjóra í sjúkraflugi hjá Norlandair, og saman eigum við tvær dætur, Júníu, 8 ára, og Sögu, 4 ára.

Ég lauk BS-gráðu í sálfræði með íslensku sem aukagrein frá Háskóla Íslands og lagði síðar stund á hlutanám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst. Frá byrjun árs 2025 hef ég starfað sem mannauðsfulltrúi á Sjúkrahúsinu á Akureyri, en áður hafði ég starfað í fyrirtækjarekstri í nokkur ár og rekið Salatsjoppuna og Götubarinn ásamt góðum viðskiptafélögum. Þá höfum við hjónin varið síðustu árum í að byggja okkur hús og lært margt af því stóra verkefni, svo sem um skipulags- og byggingamál, og kynnst góðu fólki.

Ég æfði skíði af kappi frá unga aldri og langt fram á unglingsár og hef síðan unnið við og við sem skíðaþjálfari. Tel ég það vera skemmtilegasta starf í heimi!

Ástæða þess að ég gef kost á mér í annað sæti Akureyrarlistans er sú að mér finnst ég heppin að búa í jafn góðu samfélagi og Akureyri er, þar sem við höfum nánast allt til alls (nema IKEA), og finnst ég geta haft eitthvað til málanna að leggja. Akureyrarlistinn er óháður listi sem vinnur einungis fyrir hagsmuni Akureyrar, og það finnst mér góður kostur. Ég er hugmyndarík og lausnamiðuð og finnst fátt skemmtilegra en að hugsa út fyrir boxið. Ég tel að það geti nýst vel, fái ég tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið okkar.

Þau málefni sem eru mér hugleikin eru málefni barnafjölskyldna, íþrótta- og tómstundamál og skipulags- og byggingamál. Ég hef einnig mikinn áhuga á skíðaíþróttinni og „paradísinni" Hlíðarfjalli, ásamt því að efla fjölbreytni menntunar á landsbyggðinni.

Galnar staðreyndir: Ég stofnaði Facebook-hópinn Nammitips ásamt nöfnu minni og vinkonu, Karen Björgu, þar sem um 27 þúsund meðlimir ræða sín á milli um nammi, spyrja spurninga og gefa ráð á hverjum degi. Auk þess er ég skelfilega lélegur kokkur!

Helgi Steinar Halldórsson

Helgi Steinar Halldórsson

3. sæti · Fasteignasali & ljósamaður.

Ég er fæddur á Akureyri 21. september 1984 og hef búið hér nær alla mína ævi. Ég er Akureyringur í húð og hár og hef alltaf haft sterka tengingu við bæinn – bæði sem heimili og samfélag. Ég er kvæntur Guðnýju Völu og saman eigum við tvo drengi, Hlyn Orra (14 ára) og Hilmi Kató (10 ára), sem halda manni á tánum og minna mann daglega á hvað skiptir raunverulega máli.

Ég lauk námi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri og síðar námi til löggildingar fasteigna- og skipasala árið 2022. Í dag starfa ég sem fasteigna- og skipasali hjá Kasa fasteignum þar sem ég vinn náið með fólki við að taka stórar ákvarðanir í lífinu – kaupa, selja og byggja upp. Í því starfi hef ég fengið góða innsýn í hvað skiptir fjölskyldur og fyrirtæki á Akureyri raunverulega máli.

Starfsferill minn hefur verið fjölbreyttur; ég hef unnið við sölu, þjónustu og verkefnastjórnun og komið að ýmiss konar rekstri. Samhliða því hef ég í mörg ár verið virkur í viðburða- og menningarlífi, meðal annars sem ljósahönnuður og verkefnastjóri á tónleikum, bæjarhátíðum og öðrum stórum viðburðum. Þar hef ég lært að hugsa hratt, leysa vandamál og láta hluti gerast – oft undir pressu.

Ég er í grunninn frekar "hands-on" týpa – mér finnst best að takast á við hlutina, finna lausnir og klára verkefni. Ég hef alltaf haft gaman af því að byggja eitthvað upp, hvort sem það er í starfi, verkefnum eða samfélaginu sjálfu.

Ástæðan fyrir því að ég gef kost á mér í 3. sæti Akureyrarlistans er einföld: mér þykir vænt um bæinn minn og vil sjá hann vaxa á réttan hátt. Ég vil taka þátt í að móta framtíð Akureyrar þannig að hún verði áfram sterkur, lifandi og aðlaðandi staður fyrir fólk á öllum aldri.

Þau málefni sem standa mér næst eru uppbygging og skipulagsmál, öflugt atvinnulíf og að skapa umhverfi þar sem fjölskyldur og fyrirtæki geta blómstrað.

Smá persónulegt í lokin: Ég hef mikinn áhuga á skapandi verkefnum og miðlun – og var meðal annars annar þáttastjórnandi í vefþættinum Helginn. Þar gerðum við 69 þætti af því sem í dag væri líklega kallað Sjónvarpshlaðvarp… á þeim tíma þótti þetta frekar nördalegt, en verkefnið endaði samt sem áður í sjónvarpi á N4 😄

Kristrún María Björnsdóttir

Kristrún María Björnsdóttir

4. sæti · Doktorsnemi.

Ég heiti Kristrún María og er fædd árið 1991. Ég ólst upp á Akureyri þar sem ég gekk í Lundarskóla og Menntaskólann á Akureyri og æfði skíði af kappi.

Eftir tvítugt tók við tímabil með flakki hingað og þangað við nám og störf. Ég fór í háskólanám í Lillehammer í Noregi þar sem ég lærði íþróttalífeðlisfræði og síðan í meistaranám við Háskólann í Reykjavík. Í kjölfarið vann ég við rannsóknartengd störf og síðustu ár bjuggum við fjölskyldan í Lúxemborg.

Haustið 2024 flutti ég loks aftur heim til Akureyrar, eiginmanni og tveimur börnum ríkari. Maðurinn minn er Steingrímur Páll Þórðarson, flugmaður hjá Icelandair, og saman eigum við Kötlu (9 ára), Björn (6 ára) og svo bættist Unnur Sóley í hópinn síðastliðinn júlí.

Ég er stundakennari og doktorsnemi í Heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri. Þar vinn ég að langtímarannsókn á líkamlegri og andlegri heilsu ungra Íslendinga.

Að flytja frá Akureyri og heim aftur opnaði augu mín fyrir því hvað margt er dásamlegt við bæinn okkar en líka að það er margt sem hægt er að gera betur. Ég býð mig fram í 4. sæti á Akureyrarlistanum því mig langar að leggja mitt að mörkum til að hér sé gott fyrir alla að búa.

Sturluð staðreynd: Ég hef komið til Grænlands og Færeyja en ekki sett fót á Tenerife.

Darri Rafn Hólmarsson

Darri Rafn Hólmarsson

5. sæti · Tölvunarfræðingur & plötusnúður.

Ég er fæddur á Akureyri þann 2. júlí 1991 en ég bjó í Indiana-fylki í Bandaríkjunum fyrsta árið mitt á meðan foreldrar mínir kláruðu háskólanám. Ég ólst upp á Eyrinni og æfði körfubolta á yngri árum ásamt því að prófa flestöll hljóðfærin sem Tónlistarskólinn á Akureyri bauð upp á. Á bilinu 10-11 ára byrjaði ég að hafa mikinn áhuga á bæði rapptónlist og því að plötusnúðast. Eftir það var ekki aftur snúið en síðan þá hef ég verið plötusnúður út um víðan völl og í tónlistinni náði ég helst árangri í tengslum við sigra Söngkeppni Menntaskólans á Akureyri í góðu föruneyti árið 2010 og með því að lenda í öðru sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna sama ár.

Eftir grunnskóla lá mín leið í Menntaskólann á Akureyri þar sem ég átti fjögur frábær ár og var ritari skólafélagsins Hugins frá 2010-2011. Eftir MA tók ég svo eina önn í íþróttalýðháskólanum Gerlev í Danmörku þar sem ég gerði ekki miklar gloríur nema að slíta krossband. Í kjölfar þeirrar annar setti ég stefnuna á sjálfboðastarf í Kathmandu í Nepal þar sem ég dvaldi í rúma tvo mánuði við að kenna ungum munkum ensku í búddísku munkaklaustri. Það var afar merkileg reynsla og á þessum tíma var ég svo djúpt hugsi í andlegum málefnum að ég skráði mig í guðfræði við Háskóla Íslands. Ég lauk því BA-prófi í guðfræði en fljótlega eftir það ákvað ég að venda mínu kvæði í kross (bókstaflega) og kláraði svo BS-próf í tölvunarfræði við HR/HA. Ég er því í afar fámennum hópi fólks sem er bæði guð- og tölvunarfræðingur. Ég starfa í dag sem gagnasérfræðingur hjá fyrirtækinu Maven ehf. og hef gert það í þrjú ár en fyrir það starfaði ég í þrjú og hálft ár hjá Advania.

Ég er trúlofaður Sigrúnu Sunnu Helgadóttur en við eigum saman Sóleyju Birtu og erum með einn son á leiðinni á næstu vikum.

Ég brenn fyrir málefnum fjölskyldufólks, öflugum hverfum og þjónustu innan hverfa, að börnin okkar séu örugg í umferðinni, að sporna gegn einangrun eldri borgara, að bæjarbúar séu í virku samtali við bæjarstjórn, að nýta tækni- og gagnalausnir í bæjarmálunum og að gera litla hluti sem efla stemmninguna hér í bæ. Akureyrarlistinn er skipaður af drífandi hópi fólks sem er kominn til að láta hlutina gerast.

Ég hef t.d. tjáð mig opinberlega um bæjarmál á borð við að þjónustu vanti sárlega í Nausta- og Hagahverfi: https://kaffid.is/nausta-og-hagahverfi-frabaer-hverfi-til-ad-sofa-i/

Og um það landsbyggðamál að Háskóli Íslands efli fjarnám: https://www.visir.is/g/20252721944d/thad-er-betra-fyrir-okkur-oll-ad-haskoli-islands-efli-fjarnam

Sturluð staðreynd: Ég hef tekið í spaðann á Yao Ming. Það voru alvöru lúkur.

Dana Rán Jónsdóttir

Dana Rán Jónsdóttir

6. sæti · Sérfræðingur & líftæknifræðingur.

Ég heiti Dana og er fædd árið 1990. Ég ólst upp í Þorpinu á Akureyri þar sem ég gekk í Síðuskóla og í framhaldi af því fór ég í Verkmenntaskólann á Akureyri. Það má því segja að ég sé Akureyringur í húð og hár.

Maðurinn minn heitir Axel Darri og saman eigum við eitt barn, Alexander Daða, og annað barn á leiðinni.

Að loknum framhaldsskóla sótti ég nám við Háskólann á Akureyri og útskrifaðist með BS-gráðu í líftækni. Eftir það lá leiðin til Reykjavíkur í Háskóla Íslands þar sem ég útskrifaðist með MS-gráðu í matvælafræði með áherslu á líftækni. Árið 2025 lauk ég námskeiði sem viðurkenndur stjórnarmaður.

Eftir meistaranámið bjó ég í nokkur ár til viðbótar í Reykjavík þar sem ég m.a. vann við útflutning á þurrkuðum fisk til Nígeríu. En eftir tæplega 6 ár í Reykjavík lá leiðin aftur heim í bæinn fagra, með ómetanlega reynslu og menntun í farteskinu.

Í dag starfa ég sem sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri. Þar sinni ég hinum ýmsu stjórnsýsluverkefnum og held utan um skipulag og framkvæmd á Vísindaskóla unga fólksins sem haldinn er í júní ár hvert.

Ég er mikil áhugamanneskja um Star Wars, Harry Potter, Lord of the Rings og alls konar annað nördalegt efni.

Ég býð mig fram í 6. sæti á Akureyrarlistanum því ég elska Akureyri og mig langar að gera bæinn okkar enn betri.

Sturluð staðreynd: Þegar ég var 16 ára keypti ég mér minn fyrsta bíl (Toyota Yaris) sem ég á enn þann dag í dag. Hann er enn í daglegri notkun á heimilinu og hefur verið það sl. 19 ár!

Vilmundur Aðalsteinn Árnason

Vilmundur Aðalsteinn Árnason

7. sæti · Framkvæmdastjóri & fyrrverandi sjómaður.

Ég heiti Vilmundur Aðalsteinn Árnason og kem frá Raufarhöfn. Ég ólst þar að mestu upp, en einnig á Hallgilsstöðum í Þistilfirði.

Ég er kvæntur; kletturinn minn í lífsins ólgusjó heitir Ýr Árnadóttir, og saman eigum við þrjú börn: Lindu Björk, Sölku Maríu og Nóa Kalla.

Ég flutti til Akureyrar haustið 1999 og segi bara eins og Gunnar á Hlíðarenda: „Fögur er hlíðin, ég fer ekki fet."

Árið 1997 fór ég á sjóinn. Ég tók smá hlé árið 2003 og fór að vinna hjá BM Vallá, þar sem ég starfaði til 2006. Mestan hluta sjómannsferilsins vann ég hjá Samherja, lengst af sem háseti en var kokkur síðustu árin.

Í dag rek ég fyrirtæki sem heitir Svalalokun, þar sem ég sel og set upp svalalokanir og glerhandrið.

Mér finnst frábært að búa á Akureyri og sé ótal tækifæri til að gera bæinn enn betri.

Sturluð staðreynd: Ég hef ekki séð eina einustu Star Wars-mynd og horfi ekki á fótbolta.

Guðjón Andri Gylfason

Guðjón Andri Gylfason

8. sæti · Framhaldskólakennari & lífefnafræðingur.

Ég er Akureyringur í húð og hár, fæddur og uppalinn í bænum sem ég vil sjá dafna og iða af lífi. Ég þekki samfélagið okkar, styrkleika þess og áskoranir, og mér er annt um að taka virkan þátt í að móta framtíð þess. Ég á tvær uppkomnar yndislegar dætur og heil fimm barnabörn, svo ég er ríkur. Sambýliskona mín er Rita Vaskiene, sem er litháensk að uppruna en hefur búið hér á Akureyri í 5 ár og starfar sem leikskólakennari á Iðavöllum.

Ég hef farið fjölbreytta leið á vinnumarkaði s.s. unnið í fiskvinnslu, stundað sjómennsku og verið í eigin rekstri. Þessi reynsla hefur kennt mér að standa á eigin fótum, hugsa lausnamiðað og leggja hart að mér þegar á reynir. Hún hefur líka gefið mér dýrmætt innsæi í líf og störf fólks úr ólíkum áttum. Ég er því aldeilis óhræddur við að taka að mér nýjar áskoranir.

Í dag starfa ég sem framhaldsskólakennari í efnafræði við Menntaskólann á Akureyri og er með meistaragráðu í lífefnafræði auk kennsluréttinda. Í Menntaskólanum fæ ég að vinna með ungu fólki á hverjum degi, hlusta á þau, hvetja þau og sjá þau vaxa. Það er bæði ábyrgð og forréttindi. Menntamál eru mér því sérstaklega hugleikin, því þar leggjum við grunninn að framtíðinni. Ég vil að unga fólkið okkar fái ekki bara þekkingu, heldur sjálfstraust, seiglu og færni til að takast á við lífið af fullum krafti.

Samhliða starfi mínu vinn ég að sjálfboðaliðastarfi þar sem ég starfa sem formaður körfuknattleiksdeildar Þórs. Þar hef ég kynnst af eigin raun því öfluga starfi sem íþróttafélögin í bænum standa fyrir. Íþróttir skipta sköpum fyrir heilsu, félagsfærni og sjálfstraust barna og ungmenna, og ég vil styðja enn frekar við það starf. Öflug íþróttafélög eru hornsteinn í sterku samfélagi.

Ég býð mig fram til bæjarstjórnar Akureyrar vegna þess að ég vil hafa áhrif. Ég vil standa vörð um öflugt skólastarf, styðja við íþróttahreyfinguna og skapa fleiri tækifæri fyrir ungt fólk til að blómstra. Ég trúi á hreinskiptin samskipti, ábyrgð í ákvörðunum og að við byggjum framtíðina saman, er með skýra sýn og raunverulegan vilja til að láta hlutina gerast.

Pavel Víking Landa

Pavel Víking Landa

10. sæti · Byggingaverktaki & smiður.

Ég er fæddur árið 1983 og ég brenn fyrir Akureyri.

Ég hef menntað mig á sviði þjóðhagfræði og byggingariðnaðar og starfað í byggingargeiranum síðustu 20 árin, í fjölbreyttum hlutverkum, allt frá almennu starfi til reksturs eigin fyrirtækis. Sú reynsla hefur veitt mér víðtæka innsýn í atvinnulífið og uppbyggingu samfélagsins.

Ég hef ákveðið að taka þátt í stjórnmálum af einlægum vilja til að leggja mitt af mörkum til að gera Akureyri að enn betri stað til að búa og starfa á. Ég tel að við búum yfir miklum tækifærum til að styrkja stöðu bæjarins og auka sýnileika hans, ekki sem viðbót við höfuðborgarsvæðið heldur sem öflugan og sjálfstæðan valkost. Til þess þurfum við að skapa aðstæður sem laða að bæði fjölskyldur og fyrirtæki og efla þannig fjölbreytt og sjálfbært atvinnulíf.

Helstu áherslumál mín fyrir komandi kosningar eru þrjú:

• Að efla og þróa leikskóla- og grunnskólakerfið

• Að tryggja markvissara og langtímamiðað skipulag í byggingamálum

• Að vinna að því að á Akureyri þróist alþjóðlegur flugvöllur

Hvernig hyggst ég ná þessum markmiðum?

Sem faðir tveggja barna og maki kennara legg ég ríka áherslu á samtal og samráð við þá sem þekkja best til. Það er mikilvægt að hlusta á sjónarmið og reynslu kennara, foreldra og nemenda. Með opnu og uppbyggilegu samtali getum við fundið raunhæfar lausnir sem bæta skólastarfið til hagsbóta fyrir alla. Árangursríkar breytingar byggja á samvinnu, ekki einhliða ákvörðunum.

Í skipulags- og byggingamálum vil ég stuðla að aukinni fagmennsku og framsýni, meðal annars með því að efna til arkitektasamkeppna um lykilsvæði í bænum, svo sem Akureyrarvöll. Jafnframt tel ég mikilvægt að þróa skýrari og langtíma stefnu í úthlutun byggingarlóða sem tryggir stöðugleika, óháð því hver fer með stjórn bæjarins hverju sinni.

Við þurfum einnig að vera markvissari í samskiptum við ríkisvaldið og gæta hagsmuna Akureyrar af festu. Samfélagið er í stöðugri þróun og mikilvægt er að við bregðumst tímanlega við breyttum þörfum bæði atvinnulífs og fjölskyldna.

Ég mun beita mér fyrir því að hrinda af stað verkefninu Lífsgæðakjarni og styrkja þannig innviði sem auka lífsgæði íbúa.

Einnig vil ég leggja áherslu á að efla félags- og frístundastarf fyrir börn og ungmenni, meðal annars með því að endurvekja starfsemi í Rosenborg og skapa þar fjölbreytt tækifæri til uppbyggilegra verkefna eftir skóla.

Skemmtileg staðreynd: Ég fylgist helst með íshokkí og ein eftirminnilegasta upplifun mín var að vera viðstaddur sjöunda leik í úrslitum Stanley Cup.

Rannveig Hansen Jónsdóttir

Rannveig Hansen Jónsdóttir

11. sæti · Fjármálastjóri.

Ég er fædd 17. ágúst 1964 á Akureyri, dóttir hjónanna Jóns Dans Jóhannssonar og Ruthar Hansen. Lauk stúdentsprófi af viðskiptabraut frá MA 1984, flutti til Húsavíkur sama haust og bjó til ársloka 2004.

Starfaði á Húsavík hjá World Minerals við sölu og útflutning á kísilgúr, síðustu 10 árin sem framkvæmdastjóri.

Á Húsavík hóf ég afskipti af pólitík. Þar starfaði ég með Sjálfstæðisflokknum og sat í Íþrótta- og æskulýðsnefnd fyrir þeirra hönd um tíma. Átti ekki langt að sækja áhugann, amma Freyja sá fyrir því.

Eftir að Kísiliðjan lokaði flutti ég aftur heim og starfaði hjá Eimskip í 2 ár áður en ég sneri aftur í ræturnar, til fjölskyldufyrirtækisins Sandblásturs og málmhúðunar, þar sem ég hafði skottast með pabba, afa og fleiri fjölskyldumeðlimum frá því að ég var barn og fram á fullorðinsár, skúraði og rukkaði fyrir mínum eigin vasapeningum.

Stuttu síðar sameinuðust Sandblástur og dótturfélagið Ferro Zink í Hafnarfirði undir nafni Ferro Zink og starfa ég þar enn sem fjármálastjóri, og finnst gaman i vinnunni alla daga, það hefur ekkert breyst þó að fjölskyldan sé ekki lengur við völd, þá er Ferro Zink ramm Akureyrskt fyrirtæki í eigu KEA.

Ég hef starfað í ýmsum stjórnum í gegnum áratugina og sit núna meðal annars í stjórnum Bergs félags stjórnenda og stjórn Málms innan Samtaka Iðnaðarins.

Ég á sjálf 2 dætur og 5 barnabörn, en slæ eign minni á börn og barnabörn sambýlismanns mín Ólafs E Júlíussonar sem eru 3 og 5 barnabörn til viðbótar, og já, nokkur til viðbótar, aldrei of mikið af börnum að mínu mati.

Ég er vina mörg, sem kemur sér vel svo hægt sé að dreifa álaginu við að leika við mig í öllu því sporti sem mér dettur í hug að stunda, hjól, skíði, Sup bretti og það nýjasta, golf, er sjálf búin með mótorhjóladelluna í bili, en starfa þó enn í sjálfboðavinnu við Mótorhjólasafn Íslands.

Ég býð mig fram því mér er umhugað um bæinn okkar, ég vill að almannafé sé vel varið, grunnþjónusta sé í lagi fyrir alla aldurshópa samfélagsins og hlutum sé forgangsraðað á skynsaman hátt. Ég tel mig hafa góða reynslu og eiga auðvelt með að vinna með fólki, og geti miðlað því með þessu frábæra fólki sem stendur að þessu framboði.

Galin staðreynd: Ég er búin að vera í Ginklúbb síðan 2016, ásamt 10 öðrum konum hér í bæ. Við „fundum" reglulega, smökkum nýjar framandi tegundir og berum saman mismunandi tonic, algjör Gin nörd, og á töluvert safn.

Fríða Kristín Hreiðarsdóttir

Fríða Kristín Hreiðarsdóttir

13. sæti · Grunnskólakennari.

Ég heiti Fríða Kristín og er 30 ára gömul. Ég er fædd og uppalin á Akureyri, algjör þorpari.

Ég útskrifaðist með stúdentspróf frá VMA 2015. Ég byrjaði svo á félagsvísindabraut í Háskólanum á Akureyri en ákvað fljótt að skipta yfir í kennarafræði. Útskrifaðist svo sem grunnskólakennari árið 2020. Ég flutti þá suður í nokkur ár og vann sem kennari þar. Í dag er ég umsjónarkennari á yngsta stigi í Síðuskóla.

Ég á einn þriggja ára strák, Brynjar Yl, með manninum mínum Brynjari Árnasyni.

Ég er fyrst og fremst á lista vegna þess hve vænt mér þykir um Akureyri og vil taka virkan þátt í umræðunni um þennan frábæra bæ okkar.

Sýndu stuðning þinn

Settu Akureyrarlistann á prófílmyndina þína og sýndu stuðning þinn á samfélagsmiðlum.

Búa til prófílmynd

Spurningar?

Einhverju ósvarað?

Kjóstu Akureyrarlistann

Saman getum við gert Akureyri enn betri.

Hafðu samband
Sjá öll myndbönd